Trackwell

Vörur

 

 Forðastýring TrackWell

 

TrackWell Forðastýring er veflausn sem styður nútímalega stjórnunarhætti og stuðlar að aukinni skilvirkni, meira öryggi og lækkun kostnaðar með bættri nýtingu á vinnutíma starfsmanna og notkun tækja. Þetta gildir bæði um rekstur og meðhöndlun fastafjármuna.

 

Rauntímaskráning með TrackWell Forðastýringu skilar réttari upplýsingum inn í bakendakerfi, svo sem launa-, reikninga- og framleiðslukerfi og þannig auðveldar uppgjör og frágang vegna launa og innheimtu.

 

Tugþúsundir Íslendinga nota TrackWell Forðastýringu með góðum árangri við vinnu sína á hverjum degi en auk þess erum við stolt að segja frá því að TrackWell hefur selt vörur og þjónustu til fjórtán landa í fimm heimsálfum.

  

  

Forðastýringarlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir:

  • TrackWell Tímon er öflugt og sveigjanlegt tíma-, verk- og viðverukerfi fyrir starfsmenn og tæki.
  • TrackWell Floti er flotastýringarkerfi sem býður meðal annars upp á ferlivöktun, aksturslagsgreiningu, viðhaldsvöktun, verkúthlutun (dispatching) og textasamskipti við farartæki.

 

 

Forðastýringarlausnir fyrir útgerðir og opinbera eftirlitsaðila:

  • TrackWell SeaData er flotastýringarkerfi með afla- og afurðaskráningu sem nýtist bæði skipsstjórnarmönnum og útgerðum til að hafa yfirsýn yfir afla, veiðireynslu, veiðislóðir og fleira.
  • TrackWell VMS er fiskveiðieftirlitskerfi notað af landhelgisgæslum og fjölþjóðlegum stofnunum sem hafa á hendi eftirlit með fiskveiðum.

 

 

Helstu kostir þess að innleiða TrackWell Forðastýringu eru:

  • Betri yfirsýn og hagræðing
  • Bætt nýting og notkun forða
  • Lækkun á rekstrarkostnaði fastafjármuna
  • Nútímaleg vinnutilhögun
  • Vinnusparnaður
  • Betri þjónusta
  • Aukið öryggi

 .

.